Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

4 SKIPTA GOLFNÁMSKEIÐ HEFST Í KVÖLD - ÖRFÁ PLÁSS LAUS

17.05.2016
4 SKIPTA GOLFNÁMSKEIÐ HEFST Í KVÖLD - ÖRFÁ PLÁSS LAUS

Í kvöld hefst spennandi golfnámskeið hjá Victori Viktorssyni PGA golfkennara á Hlíðavelli. Nokkur pláss eru laus á námskeiðið og hvetjum við áhugasama félagsmenn til að ganga frá skráningu sem fyrst. Fyrstur kemur fyrstur fær!

Victor Viktorsson PGA golfkennari verður með spennandi námskeið fyrir félagsmenn núna í maí. Námskeiðið er fjögur skipti og er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum í tvær vikur í maí. Á námskeiðinu er farið í gegnum alla þætti golfsins og er námskeiðið afar gott fyrir kylfinga á öllum getustigum.

Boðið verður upp á fjóra hópa en tími er í eina klst. í senn. Hóparnir fjórir verða á milli klukkan 18 og 22 þriðjudagana 17. og 24. maí og fimmtudagana 19. og 26. maí. Námskeiðið kostar 10.000 kr. og eru að hámarki 6 einstaklingar í hverjum hóp.

Hópur 1: 18:00–19:00 dagana 17., 19., 24. og 26. maí. - ALLT FULLT
Hópur 2: 19:00–20:00 dagana 17., 19., 24. og 26. maí. - EITT LAUST PLÁSS
Hópur 3: 20:00–21:00 dagana 17., 19., 24. og 26. maí. -ALLT FULLT
Hópur 4: 21:00–22:00 dagana 17., 19., 24. og 26. maí. - ÞRJÚ LAUS PLÁSS

Skráning á námskeiðið fer fram í tölvupósti á netfangið dg@golfmos.is og gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Hvetjum félagsmenn til þess að skella sér á gott námskeið hjá góðum golfkennara og koma sterk inn í golfsumarið 2016.