Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

AFREKSSAMNINGAR UNDIRRITAÐIR

27.05.2016
AFREKSSAMNINGAR UNDIRRITAÐIR

Golfklúbbur Mosfellsbæjar skrifaði í dag undir afrekssamninga við þá einstaklinga sem hafa náð forgjafarviðmiðum Golfsambands Íslands. Samningur þessi er ætlaður til þess að verðlauna þá einstaklinga sem hafa náð góðum árangri og um leið hvatning til þess að halda áfram að bæta sig sem kylfingar.

Sumarið 2015 var skrifað undir sambærilegan samning og voru kylfingarnir þá 5 talsins. Það er GM mikið ánægjuefni að í dag eru kylfingarnir orðnir 9.

GM óskar kylfingunum til hamingju og vonast til að samningur verði þeim hvatning vonast einnig til að þetta hvetji aðra kylfinga til að leggja harðar á sig til að komast undir forgjafarlínu Golfsambandsins.

Eftirfarandi kylfingar skrifuðu undir afrekssamning

  • Andri Már Guðmundsson
  • Björn Óskar Guðjónsson
  • Kristján Þór Einarsson
  • Kristófer Karl Karlsson
  • Ólöf María Einarsdóttir
  • Ragnar Már Ríkarðsson
  • Sveinn Andri Sigurpálsson
  • Sverrir Haraldsson
  • Theodór Emil Karlsson