Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

BÆNDAGLÍMA GM - FYRSTA VAL BÆNDA

21.09.2016
BÆNDAGLÍMA GM - FYRSTA VAL BÆNDA

Ákveðið hefur verið að bændur fái að velja sér 4 leikmenn hvor í sitt lið. Þetta fer fram þannig að annar bóndinn velur leikmann og hinn velur leikmann gegn honum með svipaða forgjöf.

Þar sem Bjarnþór fékk að velja sér lit á undan fékk Davíð Baldur fyrsta valrétt. Davíð valdi Bryndísi Lýðsdóttir í sitt lið og Bjarnþór valdi Andreu Jónsdóttur gegn henni. Það er ljóst að það verður hörkuviðureign.

Það vekur hins vegar athygli að þrátt fyrir að Davíð Baldur hafi átt fyrsta valrétt er Andrea konan hans í liði Bjarnþórs. Vel spilað hjá Bjarnþóri og sálfræðistríðið í algleymingi hjá þeim félögum.

Mikil stemming er fyrir glímunni en aðeins 5 sæti eru laus í mótið - skráning með tölvupósti á golfmos@golfmos.is