23.09.2016
Þá er uppröðun lokið fyrir Bændaglímu GM árið 2016. Búið er að skipta í lið, stilla upp leikjum og raða niður á teiga. Mikilvægt er að allir séu vel meðvitaðir um í hvor liðinu þeir eru, hver andstæðingurinn er og á hvaða teig er byrjað. Að lokum er mikilvægt að allir liðsmenn klæðist í einkennislit síns liðs en Davíð Baldur og félagar eru rauðir og Bjarnþór og félagar bláir.
Liðsskipan
Mæting í glímuna er klukkan 10:45 en boðið verður upp á íslenska kjötsúpu áður en leikur hefst. Ræst verður út af öllum teigum klukkan 12:00.
Sjáumst hress og kát!