Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

BÆNDAGLÍMA GM 2017 - ÚRSLIT

08.10.2017
BÆNDAGLÍMA GM 2017 - ÚRSLIT

Bændaglíma GM fór fram laugardaginn 30. September. Frábær þátttaka var í mótinu en það fylltist í mótið á aðeins tveimur dögum. Bændurnir Guðrún Leósdóttir og Margrét Óskarsdóttir fóru fyrir sínum liðum og héldu uppi frábærri stemmingu. Það er alltaf ólýsanleg stemming í Bændaglímu GM og var engin breyting á þetta árið. Veðrið var eins gott og það getur orðið, sól og rjómablíða.

Mikil spenna var á meðan fyrstu leikir voru að koma í hús en rauða lið Margrétar hafði þó nauma forystu gegn bláa liði Guðrúnar. Að lokum fóru leikar þannig að rauða lið Margrétar sigraði með 67 stigum gegn 52.

Óskum Margréti og rauða liðinu til hamingju með sigurinn!