Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Bændaglíma GM 2017

29.09.2017
Bændaglíma GM 2017

Á morgun fer fram eitt allra skemmtilegasta mót ársins hjá GM. 100 keppendur eru skráðir til leiks og er mikil spenna í loftinu. Búið er að stilla upp öllum leikjum og er hægt að sjá þá hérna fyrir neðan. Hérna eru nokkur mikilvæg atriði sem keppendur þurfa að hafa í huga:

- Á móti hverjum spila ég? (Holukeppni án forgjafar)
- Á hvaða holu byrja ég? (Upplýsingar í skjali)
- Í hvaða liði er ég? (Rauða eða bláa liðinu - koma í klæðnaði í samsvarandi lit!)
- Mæting í Klett klukkan 09:00
- Ræst út á öllum teigum klukkan 10:00

Sjáumst hress á morgun!

Upplýsingar um leiki í Bændaglímu 2017