Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

EIMSKIPSMÓTARÖÐIN Á HELLU

25.05.2016
EIMSKIPSMÓTARÖÐIN Á HELLU

Fyrsta mót Eimskipsmótaraðarinnar fór fram á Hellu og voru spilaðar 54 holur frá föstudegi til sunnudags. Golfklúbbur Mosfellsbæjar átti alls 15 fulltrúa í mótinu sem er töluverð fjölgun frá fyrri árum. Aðstæður voru þokkalega góðar, sól, 5-7 m/sek og völlurinn mjög þurr og harður. Okkar folk í GM stóðu sig með prýði og voru klúbbnum til sóma. Margir áttu fínt mót um helgina þó svo að vorbragur hafi oft á tíðum gert vart við sig í leik okkar fólks. Engin komst á verðlaunapall en það er ljóst að það er hugur í okkar fólki og það verður gaman að fylgjast með þeim í sumar.

Helstu úrslit urðu þessi.

Karlaflokkur.

Kristján Þór Einarsson 5. Sæti

Theodór Emil Karlsson 9. Sæti

Ragnar Már Ríkarðsson 20. Sæti

Björn Óskar Guðjónsson 32. Sæti

Kvennaflokkur.

Ólöf María Einarsdóttir 6. Sæti

Heiða Guðnadóttir 10. Sæti