Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

EIMSKIPSMÓTARÖÐIN Á HLÍÐAVELLI - SJÁLFBOÐALIÐAR

29.05.2016
EIMSKIPSMÓTARÖÐIN Á HLÍÐAVELLI - SJÁLFBOÐALIÐAR

Símamótið á Eimskipsmótaröðinni fer fram dagana 3. - 5. júní næstkomandi. Þetta er í annað sinn með sem mótaröð þeirra bestu fer fram á Hlíðavelli en mótið í fyrra tókst afar vel. Það er mikil eftirvænting að endurtaka leikinn síðan í fyrra og standa fyrir eins góðu móti og kostur er.

Framkvæmd á móti eins og þessu krefst mikillar vinnu og eru sjálfboðaliðar afar stór og mikilvægur þáttur í framkvæmdinni. Við leitum því til félagsmanna og óskum eftir aðstoð ykkar við framkvæmd mótsins.

Meðal þeirra starfa sem sjálfboðaliðar sinna eru t.d. skorskráning úti á velli og framvarsla auk annarra tilfallandi verkefna.

Við hvetjum félagsmenn til þess að taka þátt í að gera mótið sem glæsilegast og um leið fylgjast með okkar bestu kylfingum leika á Hlíðavelli.

Skráning sjálfboðaliða fer fram með því að smella hér