Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

FÉLAGSSKÍRTEINI OG POKAMERKI FYRIR SUMARIÐ 2017 KOMIN

24.05.2017
FÉLAGSSKÍRTEINI OG POKAMERKI FYRIR SUMARIÐ 2017 KOMIN

Nú eru pokamerkin komin fyrir félagsmenn GM fyrir sumarið 2017, notast verður hinsvegar við sömu félagsskírteini og í fyrra. Nýjir meðlimir fá bæði félagsskírteini og pokamerki er þeir koma en ef að félagi GM hefur týnt félagskírteini sínu frá því í fyrra, getur hann fengið nýtt gegn 1000. kr gjaldi.
Félagsskírteinin verða notuð í sama tilgangi og síðastliðin ár, félagar skrá sig mætta til leiks með kortunum og geta einnig fengið bolta í boltavélina á æfingasvæðinu með þeim.
Pokamerkin skulu alltaf vera sýnileg á golfpoka kylfinga þegar vallarstarfsmenn fara út á völl og sinna eftirlitsstörfum.

Félagar geta sótt félagsskírteinin og pokamerkin í afgreiðsluna við Hlíðavöll frá og með deginum í dag.