Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

FORKEPPNI TITLEIST HOLUKEPPNINNAR FRAMLENGD!

23.05.2017
FORKEPPNI TITLEIST HOLUKEPPNINNAR FRAMLENGD!

Nú er farið að líða undir lok forkeppni Titleist holukeppninnar. Alls hafa 53 karlmenn skráð sig til leiks og 30 konur. Viljum við helst fá allavega 64 karlmenn til leiks og 32 konur, höfum við því ákveðið að lengja forkeppnina fram til sunnudagsins 28. maí. Fínasta veðurskrá er út vikuna og er því tilvalið fyrir kylfinga að skella sér á Hlíðavöll og sýna sínar bestu hliðar.