Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

GOLFFERÐ GM TIL MORGADO

10.02.2017
GOLFFERÐ GM TIL MORGADO

Golfklúbbur Mosfellsbæjar stendur fyrir glæsilegri golfferð félagsmanna til Portúgal í samstarfi við VITAgolf. Ferðin er vikuferð til Morgado sem er 36 holu golfparadís. Nánari upplýsingar um Morgado eru á heimasíðu VITAgolf. Í sömu ferð verða einnig afreksunglingar klúbbsins við æfingar. Farið verður 1.-8. apríl.

Mikið fjör og mikið gaman verður í ferðinni og nóg um að vera fyrir alla kylfinga. Gist verður á glæsilegu 4* hóteli við vellina tvo, Alamos og Morgado. Sérstök GM dagskrá verður í ferðinni en drög að henni má sjá neðar í póstinum.

Verð: 166.400 kr. á mann í tvíbýli og 178.700 kr. á mann í einbýli.

Vinsamlegast athugið að EKKI er hægt að nota Icelandair Vildarpunkta í þessari ferð

Verð fyrir iðkendur: 142.400 í tvíbýli

Innifalið í ferðinni: Beint leiguflug til Faro með Icelandair, flugvallaskattar, flutningur golfsetts (hámark 15k g), akstur milli flugvallar og hótels, gisting með morgun- og kvöldverðarhlaðborði, ótakmarkað golf með golfbíl alla daga og fararstjórn.

Bókunarfrestur er til 15. febrúar

Bókunarleiðbeiningar má sjá með því að smella hér