Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

GOLFNÁMSKEIÐ FYRIR FÉLAGSMENN AÐ HEFJAST

22.05.2017
GOLFNÁMSKEIÐ FYRIR FÉLAGSMENN AÐ HEFJAST

Victor Viktorsson PGA golfkennari verður með spennandi námskeið fyrir félagsmenn núna í maí. Námskeiðið er fjögur skipti og er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum

í tvær vikur í maí. Á námskeiðinu er farið í gegnum allaþætti golfsins og er námskeiðið afar gott fyrir kylfinga áöllum getustigum.

Boðið verður upp á fjóra hópa en tíminn er í eina klst. í senn. Hóparnir fjórir verða á milli klukkan 18 og 22 þriðjudagana 23. og 30. maí og fimmtudagana 25. maí og 1. júní. Námskeiðið kostar 12.000 kr. og eru að hámarki 6 einstaklingar í hverjum hóp.

Hópur 1: 18:00–19:00 dagana 23., 25., 30. maí og 1. júní - 2 laus pláss

Hópur 2: 19:00–20:00 dagana 23., 25., 30. maí og 1. júní - 3 laus pláss

Hópur 3: 20:00–21:00 dagana 23., 25., 30. maí og 1. júní - Uppselt

Hópur 4: 21:00–22:00 dagana 23., 25., 30. maí og 1. júní - Uppselt

Skráning á námskeiðið fer fram í tölvupósti á netfangið dg@golfmos.is og gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Hvetjum félagsmenn til þess að skella sér á gott námskeið hjá góðum golfkennara og koma sterk inn í golfsumarið 2017.