Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

KOMDU Í GM OG SPILAÐU FRÍTT ÚT ÁRIÐ 2016

10.08.2016
KOMDU Í GM OG SPILAÐU FRÍTT ÚT ÁRIÐ 2016

Við bjóðum nýja meðlimi hjartanlega velkomna í Golfklúbb Mosfellsbæjar. Allir sem borga árgjald fyrir 2017 fá að leika ókeypis á Hlíðavelli og Bakkakoti það sem eftir er ársins 2016. Athugið að tilboðið miðast við fulla leikheimild.

Þeir sem hafa áhuga á að sækja um í GM fylla út umsókn með því að smella hér

Næsta skref er svo að sækja félagsskírteini í afgreiðslu GM á Hlíðavöll. Við afhendingu skírteina þarf að skrifa undir skuldbindingu um greiðslu félagsgjalds árið 2017. Innheimta á því er annaðhvort með 12 mánaða dreifingu á greiðslukorti frá nóvember 2016 til október 2017 eða staðgreiðsla við afhendingu skírteina.

Svo er bara að koma sér í golf á okkar glæsilegu vallarsvæðum.

Nánari fyrirspurnir í tölvupósti á golfmos@golfmos.is