Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

KRISTÓFER KEPPIR Í NOREGI

28.07.2017
KRISTÓFER KEPPIR Í NOREGI

Kristófer Karl Karlsson er við keppni í Noregi þar sem hann leikur á European Young Masters mótinu sem fram fer á Oslo Golfclub. Mótið hófst í gær en Kristófer lék fyrsta hring á 80 höggum.

Eftir 9 holur á öðrum hring er Kristófer að leika vel, á pari vallar.

Hægt er að fylgjast með skori keppenda með því að smella hér.

Óskum Kristófer og íslensku kylfingunum góðs gengis!