Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

LAUST STARF HJÁ GM - MÓTA OG VIÐBURÐARSTJÓRI

19.10.2016
LAUST STARF HJÁ GM - MÓTA OG VIÐBURÐARSTJÓRI

Golfklúbbur Mosfellsbæjar leitar eftir kraftmiklum starfsmanni í móta og viðburðarstjórnun hjá GM. Um er að ræða hlutastarf yfir vetrartímann og síðan fullt starf á sumrin. Gerðar eru kröfur um sjálfstæð vinnubrögð, færni í skrifuðu máli og mikinn áhuga á golfíþróttinni. Einnig myndi starfsmaðurinn koma að markaðsstarfi klúbbsins.

Starfið gæti hentað vel með námi og hvetjum við því alla áhugasama til þess að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 15. nóvember. Sótt er um með tölvupósti á netfangið golfmos@golfmos.is