Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

MEISTARAMÓT GM UPPFÆRÐ RÁSTÍMAÁÆTLUN

01.07.2016
MEISTARAMÓT GM UPPFÆRÐ RÁSTÍMAÁÆTLUN

Skráningu í Meistaramót GM lauk í gærkvöldi og er því ljóst hversu margir keppendur eru í hverjum flokki. Rástímaáætlun mótsins hefur því verið uppfærð og ætti að vera nokkuð rétt og áreiðanleg. Hinsvegar er mikilvægt að átta sig á því að endanlegir rástímar eru birtir á golf.is fyrir hvern keppnisdag og sinn rástíma.

Það er einungis stuðst við golf.is varðandi opinbera rástíma enda geta forsendur keppnisdaganna breyst skyndilega vegna t.d. veðurs. Stefnt að því að endanlegir rástíma hvers dags verði tilbúnir kl. 22.00 kvöldið áður og birtir á golf.is. Allar breytingar á keppnisfyrirkomulagi vegna óvæntra aðstæðna verða kynntar á golfmos.is og facebook síðu GM.

Rástímar fyrir fyrsta keppnisdag hafa verið birtir á golf.is og má sjá þá með því að smella hérna.

Uppfærða rástímaáætlun má sjá með því að smella hér

Athygli félagsmanna er vakin á því að þátttökuréttur í Meistaramóti GM miðast við þá félagsmenn sem gengið hafa frá félagsgjaldi ársins 2016 eða samið um greiðslu gjaldsins.