Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

OPNA ECCO MÓTIÐ

05.05.2017
OPNA ECCO MÓTIÐ

Opna ECCO mótið verður haldið næstkomandi sunnudag 7. maí en eins og eflaust þó nokkrir vita var því frestað þann 1. maí vegna óhagstæðs veðurs. Nú standa veðurguðirnir með okkur í liði og verður því mótið haldið á sunnudaginn. Skráning er í fullum gangi á golf.is og hægt er að skrá sig hér til leiks. Vegleg verðlaun verða í boði fyrir efstu þrjú sætin og verða einnig veitt nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins. Keppnisfyrirkomulag mótsins verður punktakeppni.


Punktakeppni

1. sæti - Ecco golfskór að verðmæti allt að 35.000 kr

2. sæti - Ecco golfskór að verðmæti allt að 30.000 kr

3. sæti - Ecco kerrupoki


Nándarverðlaun

1. braut - Gjafabréf í Ecco búðinni að upphæð 20.000 kr
9. braut - Gjafabréf í Ecco búðinni að upphæð 20.000 kr
12. braut - Gjafabréf í Ecco búðinni að upphæð 20.000 kr
15. braut - Gjafabréf í Ecco búðinni að upphæð 20.000 kr

Hámarksforgjöf er 24 fyrir karla og 28 fyrir konur