Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

RAGNAR MÁR OG KRISTÍN SÓL FÁ STYRK FRÁ MOSFELLSBÆ

07.05.2017
RAGNAR MÁR OG KRISTÍN SÓL FÁ STYRK FRÁ MOSFELLSBÆ

Ragnar Már Ríkarðsson og Kristín Sól Guðmundsdóttir afrekskylfingar hjá GM fengu um daginn úthlutaðan styrk frá Mosfellsbæ fyrir sumarið 2017. Íþrótta og tómstundanefnd Mosfellsbæjar úthlutar árlega styrkjum til efnilegra ungmenna með því markmiði að gefa einstaklingum tækifæri til þess að einbeita sér frekar að sinni íþrótt til þess að auka færni og árangur.

Við óskum Ragnari og Kristínu innilega til hamingju!