Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

RYDER CUP TEXAS SCRAMBLE MÓT

26.09.2016
RYDER CUP TEXAS SCRAMBLE MÓT

Laugardaginn 1. október fer fram Texas Scramble mót á Hlíðavelli. Ræst verður út á öllum teigum klukkan 10:00 og eru 88 laus pláss í mótið. Leikið er með Texas Scramble fyrirkomulagi, tveir og tveir saman í liði. Forgjöf liðs er samanlögð leikforgjöf deilt með 5. Mótið er innanfélagsmót en félagsmönnum er heimilt að taka með sér liðsfélaga úr öðrum golfklúbbum. Annar liðsmaður hvers liðs þarf því að vera í GM.

Mótsgjald í mótið er 2.000 kr.

Verðlaun eru fyrir 3 efstu sætin auk nándarverðlauna á öllum par 3 brautum.

Verðlaun

Punktakeppni
1. sæti - 2* Klippikort á golfbíl + 5 hringja klippikort á vallarsvæði GM
2. sæti - 2* dúsín af ProV1
3. sæti - 2*Ostakarfa

Nándarverðlaun
Ostakarfa frá MS

Aukaverðlaun
Lið velur annaðhvort USA eða Evrópu áður en leikur hefst. Þegar að úrslit eru ljós í Ryder keppninni á sunnudagskvöld dregst frá eða bætist við forgjöfina eftir því hvernig Ryder keppnin fer. Ef að lið velur Evrópu og Evrópa sigrar með 3 vinningum eykst forgjöfin um 3 heila. Sama gildir ef Evrópa tapar með 3 vinningum þá dregst hún saman um 3 heila.

Veittar verða 2*ostakörfur í aukaverðlaun fyrir liðið með besta skorið eftir útreikning miðað við úrslit Ryder Cup.