13.09.2016
Þá er komið að lokamótinu á GM mótaröðinni þetta árið en það er Landsbankamótið. Þetta er 8 mótið á þessari innanfélagsmótaröð og eins og félagsmenn vita gildir mótið á 66° listann - Stigalista félagsmanna. Það sem meira er þá eru tvöföld stig á þessu móti og því getur allt gerst á lokametrununm.
Til þess að taka þátt í mótinu er nauðsynlegt að gera tvennt:
- Skrá sig í mótið hérna í gegnum mótaskrá golf.is.
- Skrá sig á rástíma með félaga í gegnum rástímaskráningarkerfi golf.is.
Völlurinn er ekki lokaður vegna mótsins og því nauðsynlegt að bóka rástíma með hefðbundnum hætti og hafa 2:10 á milli fyrri og seinni 9. Gangi spil hratt er hægt að koma inn eftir fyrr 9 og kanna hvort hægt sé að fara fyrr út á seinni 9.
Það eru glæsileg verðlaun á þessu móti í boði Landsbankans.
Punktakeppni
- sæti - Titleist Vokey SM5 58° fleygjárn og dúsin af ProV1
- sæti - Titleist Vokey SM5 54° fleygjárn og hálft dúsin af ProV1
- sæti - Dúsin af ProV1
- sæti - Hálft dúsin af ProV1
Nándarverðlaun
- 3./12. braut - Dúsin af ProV1
- 6./15. braut - Dúsin af ProV1
- 9./18. braut - Dúsin af ProV1
Verðlaun verða veitt fyrir alla fugla sem koma á holum nr. 1. og 10. og fyrir alla erni á holum nr. 4. og 13.. Einn ProV1 golfbolti fyrir hvern fugl á 1. og 10. og fyrir örn á 4. og 13.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á þetta lokamót GM mótaraðarinnar 2016.