Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

SIGURPÁLL GEIR SVEINSSON LÆTUR AF STÖRFUM

20.09.2016
SIGURPÁLL GEIR SVEINSSON LÆTUR AF STÖRFUM

Sigurpáll Geir Sveinsson hefur af persónulegum ástæðum óskað eftir því að losna undan samningi sínum sem íþróttastjóri GM. Sigurpáll hefur hug á að starfa áfram í golfgeiranum en ætlar að draga sig í hlé frá stöðu íþróttastjóra og er jafnvel að huga að endurkomu í keppnisgolf á Íslandi.

Sigurpáll hefur starfað fyrir GM undanfarin 3 ár við góðan orðstýr og vilja starfsmenn, stjórn og afreksnefnd nota tækifærið og þakka Sigurpáli Geir kærlega fyrir sín góðu störf á vegum klúbbsins og óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi og velgengni á golfvellinum.

Sigurpáll mun áfram sinna starfi íþróttastjóra fram í nóvember mánuð og mun stjórn og afreksnefnd nýta þann tíma til endurskipulagningar á starfinu fyrir komandi tímabil með það að markmiði að viðhalda og bæta það góða afreksstarf sem unnið er í klúbbnum.