Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

SJÁLFBOÐAVINNA VIÐ ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GM

10.03.2017
SJÁLFBOÐAVINNA VIÐ ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GM

Laugardaginn 11. mars klukkan 11:00 ætla sjálfboðaliðar að hittast og leggja sitt af mörkum til þess að létta undir verktökunum sem eru við vinnu í íþróttamiðstöð GM. Síðast þegar sjálfboðaliðar lögðu til hendi var vel af sér staðið og vel mætt en þá mættu um 30 manns. Það sem er á dagskrá er örlítil málningarvinna og svo almenn tiltekt en hér er sýnd sundurliðun að verkum:

Málningarvinna:
Plöstun glugga fyrir málun

Tiltekt:
Almenn tiltekt á vinnustaðnum. Verktakar hafa safnað saman á verkstað rusli sem þarf að flytja burtu. Síðan er áætlað að sópa, týna upp smádrasl og annað smálegt.

Mögullega falla til einhver önnur atriði en gert er ráð fyrir að vinnu verði lokið um klukkan 13:00.

Sjálfboðaliðar eru beðnir um að koma með eftirfarandi meðferðis ef þeir hafa kost á:
• Strákústa, vinnuvettlinga, dúkahníf.

Við vonumst svo sannarlega að sjá sem flesta leggja okkur lið!