Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

UPPSTILLINGARNEFND SKILAR TILLÖGU

08.12.2016
UPPSTILLINGARNEFND SKILAR TILLÖGU

Í haust lá fyrir að nokkrir stjórnarmenn gæfu ekki kost á áframhaldandi setu í stjórn GM. Stjórn ákvað að skipa uppstillingarnefnd til að afla framboða til stjórnar og stilla upp tillögu um nýja stjórn sem lögð verður fram á aðalfundi klúbbsins þann 15. desember næstkomandi.

Nú hefur uppstillingarnefnd skilað tillögu sinni til stjórnar GM og mun stjórn leggja tillögu þessa óbreytta fram á aðalfundi félagsins. Tillaga uppstillingarnefndar og stjórnar GM er því svohljóðandi:

Aðalstjórn:

Kári Tryggvason - formaður

Guðjón Karl Þórisson

Kristinn Wium

Vala Valtýsdóttir

Auður Ósk Þórisdóttir

Ragnheiður Ríkharðsdóttir

Siggeir Kolbeinsson

Varamenn:

Einar Már Hjartarson

Nína Björk Geirsdóttir

Ásbjörn Björgvinsson

Margrét Óskarsdóttir

Aðalfundur GM verður haldinn í hátíðarsal Lágafellsskóla fimmtudaginn 15. desember kl. 20.00 og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna.

Stjórn GM.