Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

ÚRSLIT ÚR OPNA ECCO MÓTINU

07.05.2017
ÚRSLIT ÚR OPNA ECCO MÓTINU

Í dag var haldið opna Ecco golfmótið á Hlíðavelli. Vel var sótt í mótið og voru veðuraðstæður mjög fínar, smá gola um morguninn en lægði svo þegar leið á daginn og hlýnaði þá í leiðinni. Mikið var um fín skor og hörku spenna var í punktakeppninni.

Niðurstöður úr bæði punktakeppni og nöfn nándarverðlaunahafa eru hér fyrir neðan og geta verðlaunahafar nálgast verðlaunin sín frá og með þriðjudeginum í golfskála GM á Hlíðavelli.

Punktakeppni

1. sæti - Hilmar Leó Guðmundsson, GO, 44 punktar
2. sæti - Guðmundur Óskar Óskarsson, GM, 40 punktar (21 á seinni níu)
3. sæti - Magnús Rósinkrans Magnússon, GR, 40 punktar (19 á seinni níu)

Nándarverðlaunahafar

1. hola - Erlingur Arthúrsson, GM, 330 cm
9. hola - Randver Ármannsson, GKG, 143 cm
12. hola - Jakob Bjarnar Grétarsson, GSE, 222 cm
15. hola - Rafn Jóhannesson, GM, 359 cm

Golfklúbbur Mosfellsbæjar vill þakka öllum keppendum sem tóku þátt í mótinu og ennfremur Ecco fyrir stuðninginn.