Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

ÚRSLIT ÚR VÍÐISMÓTINU

21.08.2016
ÚRSLIT ÚR VÍÐISMÓTINU

Í dag fór fram í Bakkakoti 6. umferð GM mótaraðarinnar sem haldinn er fyrir félagsmenn í GM. Veður í dag var vætusamt framan af og sáust merki þess á skori félagsmanna. Þó létti töluvert til þegar leið á daginn og eftir hádegi var fínasta veður til golfiðkunar í Mosfellsdal þó þétt rigndi í bænum.

Úrslit voru sem hér segir:

Punktakeppni

  1. Þórarinn Egill Þórarinsson 36 punktar
  2. Hekla Ingunn Daðadóttir 35 punktar
  3. Ingibjörg Sigurrós Helgadóttir 32 punktar ( betri á seinni 9 )

Nándarverðlaun

  • 6./15. braut Gunnar Ingi Björnsson, 406 cm
  • 9./18. braut Ingibjörg Sigurrós Helgadóttir, 55 cm

Stigalisti félagsmanna verður uppfærður eftir mótið núna strax eftir helgi. Eftir eru 2 síðustu mótin á GM mótaröðinni og því ennþá hægt að ná sér í fleiri stig á listanum. Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun í Golfskálanum í Bakkakoti frá þriðjudeginum 23. ágúst.