Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

VALLARLOKANIR - FRÁ VALLARSTJÓRUM

11.11.2016
VALLARLOKANIR - FRÁ VALLARSTJÓRUM

Kæru félagar

Haustið hefur verið okkur ansi milt og hagstætt til golfiðkunar, þrátt fyrir mikla úrkomu og bleytu hafa komið góðar stundir og hafa félagar verið duglegir við að nýta sér þær stundir á vallarsvæðum okkar. Nú er þó komið að þvi að loka þarf völlunum og erum við nú þegar búnir að loka Bakkakoti.

Hlíðavöllur verður opinn einhverja daga í viðbót á sumarflatir og kemur tilkynning samdægurs um það þegar við færum okkur yfir á vetrarflatirnar. Öllum teigum hefur þó verið lokað og erum við að vinna í því að koma fyrir böndum og loka viðkvæmum svæðum. Við notuðumst töluvert við bönd í fyrravetur og gaf það góða raun og má vel búast við því að jafnvel meira af böndum verði sett út í vetur til að stjórna umferð og álagi.

Eins og veðurspáin er í dag er útlit fyrir að þessi helgi verði okkar síðasta helgi á sumarflötum þetta árið. Hvetjum við því sem flesta að nýta sér það tækifæri áður en við gefum þeim gott vetrarfrí.