Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

ÚRSLIT - VETRARMÓTARÖÐIN

21.02.2017
ÚRSLIT - VETRARMÓTARÖÐIN

Vetrarmótaröðin hélt áfram um helgina með 18. móti vetrarins. Veðurskilyrði voru góð miðað við miðjan febrúar og var þáttakan í mótið til fyrirmyndar, en alls mættu 80 kylfingar til leiks og nutu þess að spila golf við þessar góðu aðstæður. Stefán Þór Hallgrímsson átti besta hring dagsins en hann spilaði 18 holurnar á 69 höggum eða 3 höggum undir pari vallarins. Í punktakeppninni var það Edda Herbertsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari með 42 punkta.

Helstu úrslit voru.

Höggleikur.

1. Stefán Þór Hallgrímsson 69 högg.
2-3. Jón Frímann Jónsson 76 högg.
2-3. Lárus Sigvaldasson 76 högg.

Punktar.

1. Edda Herbertsdóttir 42 punktar.
2. Ólafur Jón Árnason 41 punktur. ( 23 )
3. Björn Pálsson 41 punktar. ( 16 )