Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

VILT ÞÚ AÐSTOÐA VIÐ INNRÉTTINGU ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐVAR GM?

25.10.2016
VILT ÞÚ AÐSTOÐA VIÐ INNRÉTTINGU ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐVAR GM?

Nú styttist í að uppsteypu og einangrun nýrrar Íþróttamiðstöðvar GM ljúki en stefnt er að því að húsið verði orðið fokhelt um miðjan desember. Í byrjun janúar hefst síðan vinna á efri hæð hússins við innréttingu og frágang efri hæðarinnar.

Undirbúningur undir þá vinnu er að hefjast og er skipulagning hennar afar mikilvæg enda ljóst að miklu skiptir að vinna gangi vel þannig að hægt verði að opna 1. maí á næsta ári í nýrri aðstöðu.

Margir félagsmann hafa haft samband og viljað forvitnast um sjálfboðavinnu í húsinu. Stefnt er að því að mynda sérsveit félagsmanna sem kemur að ákveðnum afmörkuðum verkþáttum í frágangi að innan. Hugmyndin er síðan að mynda smærri hópa sem taka stuttar verklotur við afmarkaða verkþætti. Með þessu fyrirkomulagi verður vinna þessi aðgengileg fyrir félagsmenn og auðvelt að plana hana.

Skráning í sérsveitina er hafin og eru áhugasamir félagsmenn beðnir um að fylla út form að neðan og láta vita af sér en í framhaldinu verður boðaður kynningar og skipulagsfundur áður en eiginleg vinna hefst. Þetta er frábært tækifæri til að leggja lóð sín á vogarskálarnar til þess að GM opni í sem glæsilegastri aðstöðu á nýju golftímabili sem styttust óðum í að hefjist.

Skráning í sérsveitina - Smellið hér