26.09.2017
Það styttist óðum í golfsumrinu. Þó vellirnir séu orðnir nokkuð blautir eru þeir ennþá í prýðisgóðu ástandi. Það er því hægt að leika golf áfram og vonandi sem lengst!
Varðandi opnun vallanna þá verður opið á sumarflatir fyrir félagsmenn eins lengi og mögulegt er vegna næturfrosts. Ef til þess kemur að loka þarf vegna næturfrosts verður rástímum lokað og eru félagsmenn beðnir um að kanna á golf.is áður en þeir leggja af stað hvort vellir séu opnir - sérstaklega ef kalt er í veðri.
Opnunartímar og fyrirkomulag á vallarsvæðum GM í haust:
Bakkakot
- Skáli og veitingasala loka frá og með fimmtudeginum 28. september
- Sumarflatir eru opnar fyrir leik, félagsmenn bóka á golf.is og staðfesta mætingu fram að næturfrosti
- Eftir að lágt hitastig er orðið viðvarandi verður Bakkakoti algjörlega lokað fyrir leik í vetur
Hlíðavöllur
- Blik Bistro mun loka fyrir veturinn frá og með föstudeginum 6. október
- Hægt er að bóka viðburði, fundi og veislur í Kletti í vetur - blik@blikbistro.is
- Opið fyrir leik félagsmanna og gesta til fimmtudagsins 5. október
- Frá og með föstudeginum 6. október geta einungis félagsmenn í GM leikið á Hlíðavelli
- Eftir að lágt hitastig er orðið viðvarandi verður sumarflötum lokað og vetrarflatir og teigar teknir í notkun
- Einungis félagsmenn í GM geta leikið Hlíðavöll á vetrarflötum