Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

GM AUGLÝSIR LAUS SUMARSTÖRF!

14.02.2017
GM AUGLÝSIR LAUS SUMARSTÖRF!

Golfklúbbur Mosfellsbæjar er að opna nýja og glæsilega aðstöðu og auglýsir laus til umsóknar fjölbreytt sumarstörf með möguleika á framtíðarstörfum. Umsóknarfrestur er til 10. mars. Við leitum að einstaklingum sem hafa afburða góða þjónustulund og áhuga á að vinna í kraftmiklum félagsskap við krefjandi aðstæður. Þetta eru störf fyrir fólk á öllum aldri og er þekking eða reynsla af golfi ekki skilyrði. Í boði eru heilsdags og hlutastörf og er ýmist unnið á föstum tímum eða með vaktavinnufyrirkomulagi. Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma.

Störf í afgreiðslu
Fjölbreytt störf við afgreiðslu á vallarsvæðum klúbbsins. Almenn afgreiðsla á vörum, veitingum og þjónustu ásamt rástímaskráningu o.fl. Vaktavinna.

Aðstoð í eldhúsi
Leitum að aðstoðarmanni í eldhús, t.d. matráði eða matartækni en einnig kemur til greina að ráða kokk. Viðkomandi þarf að geta leyst kokka af í helstu verkefnum. Vaktavinna.

Umhirða golfvalla

Almenn umhirða á vallarsvæðum GM. Vinnutími miðast við 06:00 – 14:00 ásamt vaktavinnu.

Umhirða opinna svæða í Mosfellsbæ
Sláttur á vélum og minni tækjum í Mosfellsbæ ásamt því að sinna verkefnum á vallarsvæðum GM á minni tækjum. Vinnutími frá 08:00 – 16:00.

Vallareftirlit
Skemmtileg vinna sem felur í sér eftirlit með eignum og vallarsvæðum GM ásamt gestum vallanna. Létt vallarstörf samhliða afgreiðslustörfum. Vaktavinna.

Umsóknarfrestur er til 10. mars. Umsókn skal skilað á golfmos@golfmos.is og er æskilegt að hún innihaldi helstu upplýsingar um viðkomandi ásamt starfsreynslu og meðmælanda ef þess er kostur.