Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

​MIÐASÖLU Á LOKAHÓFIÐ LÝKUR Á MORGUN MIÐVIKUDAGINN 21. SEP

20.09.2016
​MIÐASÖLU Á LOKAHÓFIÐ LÝKUR Á MORGUN MIÐVIKUDAGINN 21. SEP

Þá styttist í Uppskeru og Lokahátíð GM golftímabilið 2016 en það fer fram næstkomandi laugardagskvöld. Mikið verður um dýrðir þetta kvöld en boðið verður upp á 3 rétta mat ásamt skemmtiatriðum og verðlaunaafhendingu fyrir keppnir sumarins. Miði á lokahófið kostar einungis 3.900 kr.

Miðasala á lokahófið er í afgreiðslum GM bæði á Hlíðavelli og í Bakkakoti og hefur gengið vel. Ákveðið hefur verið að bæta við einum degi í miðasölu þar sem einhverjir hafa ekki áttað sig á því að kaupa þarf miða fyrirfram. Það er nauðsynlegt að gera ráðstafanir varðandi mat og aðföng og því þarf mæting á lokahófið að liggja fyrir eigi síðar en annað kvöld.

Við viljum hvetja alla félagsmenn GM að koma á Uppskeruhátíðina. Verið er að skapa hefð til framtíðar en á næsta ári verður Uppskeruhátíðin haldin í nýjum glæsilegum húsakynnum. Dagskrá kvöldsins verður skemmtileg og maturinn góður en maður er manns gaman og því viljum við núna hvetja félagsmenn sérstaklega til þess að mæta og taka þátt.