Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Eldri kylfingar

Golfklúbbur Mosfellsbæjar heldur úti afreksstarfi fyrir eldri kylfinga klúbbsins. Aðgang að golfæfingum eldri kylfinga hafa þeir kylfingar sem hafa náð eftirfarandi forgjafarviðmiðum sem og 50 ára aldri (Fæðingarár gildir - 1974 og fyrr).

Konur: Forgjöf 20.0 og lægra
Karlar: Forgjöf 9.0 og lægra

Allir kylfingar sem taka þátt í æfingum gefa með því kost á sér í keppnissveitir GM í Íslandsmóti golfklúbba í flokki eldri kylfinga.

Æfingarnar fara fram í Íþróttamiðstöð GM við Hlíðavöll. Æfingarnar fara fram aðra hverja viku á föstudögum 14:00 - 15:00 og hina vikuna á móti á miðvikudögum 20:30 - 21:30. Karlar byrja á miðvikudeginum 24. janúar og konurnar föstudeginum 26. janúar en vetraræfingarnar standa út fyrstu vikuna í júní.

Konur 50+ - Skráning hérna
Karlar 50+ - Skráning hérna

Val í keppnissveitir 50+ 2023

Í hverru sveit eru allt að 9 karlar og 9 konur sem munu leika fyrir merki GM í Íslandsmóti liða 50+.

6 kylfingar af 9 komast sjálfkrafa inn af meðalskori og 3 eru valdir af öldunganefnd, þjálfara og íþróttastjóra.

Leikið um 6 sæti hjá kvk og 6 sæti hjá kk (án forgjafar):

  • VITA mótaröð - 3 bestu 18-holu skorin

  • LEK mót - 2 bestu 18-holu skorin (Smelltu hér fyrir LEK dagskrá 2023)

  • Íslandsmót eldri kylfinga - 3 18-holu skor

  • Stigamótaröð GSÍ og Íslandsmót í höggleik - 4 bestu 18 holu skorin

  • Meistaramót - 3 bestu 18 holu skorin ef leiknar 72 holur, 2 bestu 18 holu skorin ef leiknar 54 holur (lakasta skor gildir ekki óháð flokk) (betra mótið gildir ef leikið er í 2 mismunandi flokkum)

Til að vera gjaldgeng/ur til að vera valin/n í leikin sæti þarf að skila a.m.k. 7 hringjum til meðaltals. Ef leiknir eru fleiri en 7 hringir til viðmiðunar gilda lægstu 7 í meðaltalið.

Lokadagsetning 8. ágúst er síðasta viðmiðunarmót.

Ef val stendur á milli tveggja/þriggja má liðsstjóri bjóða til umspils um sætin.

Leiki kvenkylfingur af meistaraflokksteigum (bláum/gulum) dragast 3 högg frá heildarskori.

Leiki karlkylfingur af meistaraflokksteigum (hvítum/svörtum) dragast 2 högg frá heildarskori.

Staðan