Það er mikilvægt að fá leiðsögn þegar maður er að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Í sumar munum við bjóða upp á námskeið fyrir alla nýliða klúbbsins. Námskeiðin verða í höndum golfkennara GM og verða dagsetningar nánar kynntar á næstu dögum.
Með öllum nýskráningum í Golfklúbb Mosfellsbæjar sumarið 2018 býðst nýliðum í golfi frír aðgangur að nýliðaæfingum hjá GM. Æfingarnar fara fram vikulega í júní og júlí. Nýliðaæfingarnar fela í sér eftirfarandi
- Vikulegar golfæfingar
- Reglu og upplýsingakvöld
- Aðstoð við að fá skráða forgjöf
- Kynning á golf.is - skráning á golfmót og almennar reglur
Nánari upplýsingar og skráning verður kynnt þegar nær dregur sumri.