Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

AÐALFUNDARBOÐ

18.11.2019
AÐALFUNDARBOÐ

Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar verður haldinn í Kletti þriðjudaginn 3. desember 2019 klukkan 19.30.


Dagskrá aðalfundar

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á vegum félagsins.
3. Áritaðir reikningar kynntir.
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Tillaga um samþykki fjárhagslegrar endurskipulagningar,
sem felur meðal annars í sér sölu á neðri hæð Kletts til Mosfellsbæjar*
6. Lagabreytingar.
7. Rekstraráætlun komandi starfsárs kynnt.
8. Ákvörðun félagsgjalda.
9. Kosning stjórnar, formanns og tveggja skoðunarmanna reikninga.
10. Kosning aganefndar og kjörnefndar.
11. Önnur mál.

*Stjórn félagsins hefur unnið að endurfjármögnun klúbbsins á umliðnu ári í samvinnu við Mosfellsbæ og Landsbankann.
Niðurstaða þeirra vinnu er einkum tvíþætt; í fyrsta lagi skuldbreytingar á núverandi lánum og hins vegar sala á neðri hæð íþróttamiðstöðvarinnar Kletts.
Óskað er eftir heimild fundarins til að ljúka þríhliða samningi við Mosfellsbæ og Landsbanka til að styrkja rekstrargrundvöll klúbbsins.



Á fundinum verður nýr framkvæmdastjóri kynntur og farið verður yfir áform um framkvæmdir á neðri hæð Kletts. En þar verður frábær aðstaða til vetraræfinga með golfhermum, púttsvæði o.fl

Hvetjum alla félagsmenn til að mæta og taka þátt í uppbyggingu klúbbsins sem sannarlega sér fram á bjarta tíma.

Stjórn Golfklúbbs Mosfellsbæjar