Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Árshátíð GM 2018 - uppskeruhátíð og lokahóf

26.09.2018
Árshátíð GM 2018 - uppskeruhátíð og lokahóf

Árshátíð GM fer fram laugardaginn 3. nóvember í Kletti. Kvöldið verður sannkallður hápunktur ársins fyrir félagsmenn með frábærum veitingum og skemmtiatriðum. Veitt verða verðlaun fyrir helstu mót og afrek sumarsins; Titleist-holukeppnin, Víking-deildin, 66°stigalistinn, félagsmaður ársins, högg ársins og Framfarabikarinn.

Boðið verður upp á mögnuð skemmtiatriði. Hinn eini sanni Gunnar Sigurðarson, betur þekktur sem Gunni samloka, verður veislustjóri og mun tryggja að allir skemmti sér konunglega.

Kylfingurinn og sprellarinn Auðunn Blöndal fer með gamanmál af sinni alkunnu snilld.

Verðlaun veitt fyrir allar helstu keppnir sumarsins. Kylfingar ársins valdir, framfarabikarinn fær nýtt heimili og félagsmaður ársins heiðraður.

Trúbadorinn Eiríkur Hafdal leikur undir borðhaldi fram eftir kvöldi og skapa frábæra stemmingu.

GM bandið mun líta kvöldsins ljós í fyrsta skipti og leika undir dansi fram eftir nóttu.



Ekta Mosó stemming!

Glæsilegar veitingar Takmarkaður miðafjöldi

Forréttahlaðborð

Aðalréttarhlaðborð
Beef Wellington
Hasselback kartöflur
Villisveppasósa með trufflum
Ferskt haustsalat
Steikt grænmeti

Eftirréttir
Creme Brulé
Makkarónur
Konfekt og kaffi


Miðasala hafin!

Miðinn kostar 6.900 kr og er miðasala hafin í Kletti.
Fyrstir koma, fyrstir fá!