Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Bændaglíma GM 2018 - Leikjaniðurröðun

19.09.2018
Bændaglíma GM 2018 - Leikjaniðurröðun

Á laugardaginn fer fram skemmtilegasta mót ársins og ljóst að keppendur eru fullir eftirvæntingar. Hérna eru nokkrar mikilvægar upplýsingar fyrir keppendur í Bændaglímu og mikilvægt að allir lesi vel og vandlega. Kristján Þór fer fyrir rauða liðinu og Heiða Guðnadóttir fyrir bláa liðinu.

Keppendur eiga að reyna eftir fremsta magni að koma klæddir í réttum lit!
Hægt verður að kaupa buff í rauðum og bláum lit í Kletti.

Keppendur ættu að vera með eftirfarandi atriði á hreinu

- Á móti hverjum spila ég?
- Á hvaða holu byrja ég?
- Í hvaða liði er ég? (Rauða eða bláa liðinu - koma í klæðnaði í samsvarandi lit!)
- Mæting í Klett klukkan 12:00 í síðasta lagi
- Ræst út á öllum teigum klukkan 13:00

leikjaniðurröðun2018 (1).pdf