Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Bændaglíma GM 2022 - Liðsskipan

14.09.2022
Bændaglíma GM 2022 - Liðsskipan

Skemmtilegasta golfmót ársins, Bændaglima GM, fer fram laugardaginn 17. september á Hlíðavelli. Ræst verður út á öllum teigum klukkan 13:00 en mæting er í Klett klukkan 12:00. Aðeins 96 kylfingar komast í mótið og ljóst að völlurinn verður þétt setinn af glöðum GM kylfingum eins og undanfarin ár. Það voru rétt um 120 kylfingar sem skráðu sig til leiks en því miður komast bara 96 að í mótinu. Það er því góður biðlisti og þar sem að liðin hafa verið birt þá verður tekið inn af biðlista (sé þess þörf) útfrá forgjöf. Það þarf kylfingur með sambærilega forgjöf að koma inn fyrir þann sem dettur út.

Eins og undanfarin ár verður keppendum skipt upp í tvö lið, rauða og bláa liðið. Bóndi rauða liðsins er Þorvaldur B. Hauksson og bóndi bláa liðsins er Davíð Baldur Sigurðsson. Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til þess að mæta í einkennislit ykkar liðs :)

Leikfyrirkomulag
Keppendum í Bændaglímu GM er skipt upp í tvö lið. Leikin er holukeppni með texas scramble fyrirkomulagi þar sem tveir og tveir mætast. Leiknir eru 2 leikir á sitthvorum 9 holunum og fæst einn punktur fyrir hvorn leik. Takist kylfingum að vinna báða sína leiki bætist við aukapunktur. Sá bóndi vinnur sem hlýtur fleiri punkta.

Eftir að móti lýkur verður grillveisla og verðlaunaafhending í Kletti.

Hér að neðan má sjá liðskipan laugardagsins: