14.12.2018
Stjórn GM hefur tekið ákvörðun um að fresta aðalfundi félagsins, sem fyrirhugað var að halda næstkomandi mánudag, þann 17. desember.
Ástæða frestunar er að ekki hefur náðst niðurstaða í fjármögnun framkvæmda nýrrar félagsaðstöðu sem stjórn hefur unnið að á árinu. Þess er vænst að niðurstaða liggi fyrir á næstu vikum og þegar hún liggur fyrir mun aðalfundur verða boðaður.
Stjórn Golfklúbbs Mosfellsbæjar