Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Hrefna Birgitta Bjarnadóttir - Félagsmaður ársins

14.02.2023
Hrefna Birgitta Bjarnadóttir - Félagsmaður ársins

Árshátíð GM var haldin síðastliðinn laugardag og var hún vel sótt og þökkum við öllum ykkar sem mættuð kærlega fyrir komuna.

Á árshátíðinni voru veitt ýmis verðlaun og þar bar hæst félagsmaður ársins, en það er viðurkenning sem við veitum þeim GM félaga sem unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu klúbbsins.

Félagsmaður ársins fyrir árið 2022 er Hrefna Birgitta Bjarnadóttir.

Við fórum af stað síðastliðið vor með starf fyrir kylfinga í GM sem náð hafa 65 ára aldri. Það er óhætt að fullyrða að því hafi verið virkilega vel tekið og það eru um 170 kylfingar sem taka þátt í starfinu núna. Við vorum það heppin að fá öflugt fólk til þess að leiða þessa vinnu fyrir okkur og þar fer hún Hrefna fremst í flokki. Hún hefur haldið virkilega vel utan um þennan hóp og hefur sem formaður nefndarinnar leitt það af miklum dugnaði og krafti.

Er Hrefna virkilega vel að þessu komin og óskum við henni kærlega til hamingju og þökkum henni innilega fyrir sitt mikla og óeigingjarna starf í þágu klúbbsins.

Einnig viljum við þakka sérstaklega þeim Palla Eyvinds, Sigga Geirs, Ingveldi Braga, Svanberg og Braga Jóns sem hafa leitt þetta með henni Hrefnu, þau eiga líka stóran þátt í því hversu vel þetta hefur gengið hjá okkur.

Svo viljum við að sjálfsögðu þakka öllu þessa glæsilega fólki sem mætir alla miðvikudaga gerir þetta allt svona skemmtilegt :)