Á aðalfundi GM sem fram fór þann 28. janúar síðastliðinn voru félagsgjöld ársins 2019 ákvörðuð og eru eftirfarandi:
Allar upplýsingar um greiðsluleiðir og fyrirkomulag má finna hérna fyrir neðan.
Nýtt greiðslukerfi - Nóri
GM hefur tekið í notkun kerfið Nóra fyrir skráningu félagsmanna og innheimtu félagsgjalda. Kerfið hefur verið notað af íþróttafélögum um allt land með góðum árangri. Félagsmenn geta skráð sig inn með rafrænum skilríkum á slóðinni golfmos.felog.is og gengið frá greiðslu félagsgjalda fyrir árið 2019. Bæði er hægt að greiða með greiðslukorti eða fá kröfur í heimabanka. Öll greiðsla félagsgjalda er rafræn og ganga félagsmenn sjálfir frá greiðslu í gegnum vefinn.
Greiðsluleiðir
Hafi engar ráðstafanir verið gerðar af hálfu félagsmanna fyrir 20. febrúar næstkomandi munu félagsgjöld verða innheimt með 4 greiðsluseðlum.
Hérna fyrir neðan má finna leiðbeiningar, skref fyrir skref. Það er bæði hægt að skoða leiðbeiningar á myndbandsformi og myndaformi.
Vakni einhverjar spurningar varðandi félagsgjöld eða greiðslu þeirra er félagsmönnum bent á að hafa samband við skrifstofu GM í síma 566-6999. Skrifstofan er opin alla virka daga á milli klukkan 10:00 og 16:00.
Leiðbeiningamyndband um greiðslu félagsgjalda: