24.07.2021
Íslandsmót golfklúbba er núna í gangi í efstu deildum karla og kvenna. Leikið er á Hlíðavelli og Korpunni.
Stelpurnar okkar hafa spilað virkilega vel og unnið alla sína leiki og leika í dag til úrslita við Golfklúbb Reykjavíkur. Sá leikur fer fram á Korpunni og hefst kl. 8:30.
Strákarnir okkar spila á Hlíðavelli í dag við Golfklúbbinn Keili í virkilega mikilvægum leik. Hefst sá leikur kl. 9:30
Hvetjum við okkar félagsmenn til þess að mæta og styðja við bakið á okkar liðum og fylgjast með virkilega flottu golfi.