Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Lokanir vegna Covid-19

24.03.2021
Lokanir vegna Covid-19

Hertar sóttvarnarráðstafanir taka gildi 25.03.2021

Viðbragðshópur GSÍ fundaði síðdegis í dag, 24. mars, eftir að ríkisstjórnin kynnti ný og strangari sóttvarnatilmæli vegna Covid-19 sem taka gildi 25. mars 2021 og gilda í 3 vikur. Í nýju reglunum eru almennar fjöldatakmarkanir miðaðar við 10 manns og ná reglurnar til allra sem fæddir eru 2015 eða fyrr.

Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar. Samkvæmt nýju reglunum virðist ljóst að golfklúbbum er gert að loka æfingasvæðum og inniaðstöðu sinni og mælst er til þess að það verði gert.

Viðbragðshópurinn bíður eftir að reglugerð heilbrigðisráðherra verði gefin út og er samhliða því að afla frekari upplýsinga um þau atriði sem snúa að golfiðkun utandyra. Hópurinn mun senda frá sér tilkynningu til golfklúbba landsins eins fljótt og unnt er vegna stöðunnar. Til upplýsinga: Hlekkur í minnisblað og reglugerð Kveðja viðbragðshópur GSÍ.