Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Meistaramótsvikan að fara af stað.

01.07.2022
Meistaramótsvikan að fara af stað.

Meistaramót GM 2022 hefst á sunnudaginn og hafa rástímar sunnudagsins nú verið birtir í mótaskrá á Golfboxinu.

Þátttakan er frábær og hefur meistaramótið okkar aldrei verið jafn fjölmennt. Það er 343 keppendur skráðir til leiks. Það er orðið uppselt í lokahófið og því getum við því miður ekki boðið mökum að koma í matinn líkt og hefur verið, en makar og gestir eru velkomnir eftir matinn og taka þátt í fjörinu með okkur fram eftir nóttu ????

Í meistaramótsviku munu klúbbhús félagsins opna klukkan 07:00.

Það verða grasdagar á æfingasvæðinu okkar á Hlíðavelli alla dagana og verður grasteigurinn opinn frá 06:00 til 18:00. Frá 18:00 til 21:30 verður motturnar að sjálfsögðu opnar.

Í meðfylgjandi hlekk má sjá rástíma sunnudagsins.

Rástímar á Hlíðvelli sunnudaginn 3. júlí