Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

NÝTT FORGJAFARKERFI

02.03.2020
NÝTT FORGJAFARKERFI

Í gær var nýtt forgjafarkerfi tekið í notkun á Íslandi, World Handicap System (WHS).

Samhliða innleiðingu WHS forgjafarkerfisins mun Golfsamband Íslands gangsetja tölvukerfið GolfBox. Nýjar forgjafarupplýsingar verða því ekki sýnilegar á hefðbundnum stað á golf.is, heldur þurfa kylfingar að nálgast þær í nýja GolfBox kerfinu sem opnar fyrir kylfinga um eða upp úr mánaðamótunum. Athugið að einungis virkir kylfingar í golfklúbbum munu geta stofnað nýjan aðgang í GolfBox.

Nánari upplýsingar um hvernig kylfingar tengjast GolfBox kerfinu verða sendar til félagsmanna í GM um leið og kerfið hefur verið opnað fyrir almennan aðgang. Eins og alltaf þegar ný kerfi eru tekin upp munu vafalaust verða einhverjir byrjunarörðugleikar. Við biðjum því félagsmenn okkar að sýna umbyrðarlyndi og þolinmæði fyrstu vikurnar.

Vinna við þróun kerfisins hófst árið 2011 með það að markmiði að koma í stað þeirra sex ólíku kerfa sem verið hafa við lýði í heiminum til þessa. Hvert golfsamband ræður hvenær það tekur kerfið í notkun, sums staðar var kerfið innleitt um síðustu áramót, önnur golfsambönd stefna að innleiðingu í vor og enn önnur í haust.

Í WHS forgjafarkerfinu er forgjöfin reiknuð út frá 8 bestu hringjum leikmannsins af síðustu 20. Tekið er tillit til leikaðstæðna á þann hátt að skor leikmanns er leiðrétt m.t.t. almenns skors á viðkomandi velli á leikdegi. Einnig er notast við sérstaka útreikninga til að taka tillit til óvenju góðra skora leikmanna og ákveðnar skorður settar við hækkun forgjafar.

Við innleiðingu WHS kerfisins á Íslandi verður forgjöf kylfinga endurreiknuð, út frá eldri forgjafarhringjum og í samræmi við nýju reglurnar. Byggt verður á öllum forgjafarhringjum sem skráðir eru á golf.is frá 1. janúar 2017. Langflestir kylfingar munu sjá minniháttar breytingar á forgjöf sinni.

Nánari upplýsingar um nýja forgjafarkerfið má finna á vefsíðunni golf.is/forgjof.