Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Nýir rekstraraðilar veitinga hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar

14.10.2022
Nýir rekstraraðilar veitinga hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar

Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur samið við GGG veitingar um rekstur veitinga á Blik bistro og í golfskálanum í Bakkakoti.

GGG veitingar eru þeir Ágúst Reynisson, Guðlaugur Frímannsson og Grétar Matthíasson.

Þeir Ágúst og Guðlaugur eiga og reka Grillmarkaðinn og Fiskmarkaðinn og hafa gert það síðastliðin 15 ár með virkilega góðum árangri. Grétar Matthíasson sem verður rekstrarstjóri GGG veitinga og sér því um daglegan rekstur á Blik og í Bakkakoti hefur mikla reynslu úr veitingarekstri og var m.a. rekstrarstjóri á Grillmarkaðnum í um 8 ár.

"Við erum virkilega spenntir fyrir þessu og horfum björtum augum fram veginn og ætlum okkur stóra hluti. Blik bistro er æðislegur staður og við viljum að golfarar sem og aðrir gestir geti ávallt gengið að frábærum veitingum og góðri þjónustu. Bakkakot er falin perla upp í Mosfellsdal með góðu klúbbhúsi og frábæru útisvæði, sveit í borg. Þar viljum við líka bjóða upp á sömu gæði og á Blik bistro. Við erum mjög spenntir fyrir þessari nýju áskorun og hlökkum mikið til að opna dyrnar fljótlega fyrir GM félögum og þeim sem vilja gera vel við sig í mat og drykk! Við ætlum að vera með fjölbreyttan og góðan matseðil þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi" sagði Ágúst Reynisson í tilefni af undirskrift samnings.

Samningurinn við GGG veitingar er langtímasamningur og erum við þess fullviss að samstarfið eigi eftir að vera gott og farsælt næstu árin.

Stefnt er að því að hefjast handa fljótlega við smá lagfæringar í salnum á Blik og að þeir félagar taki við rekstrinum í byrjun desember að þeim breytingum loknum. Verður það nánar tilkynnt síðar.

Bjóðum við þá félaga hjartanlega velkomna í hópinn og hlökkum mikið til samstarfsins næstu árin!