15.03.2021
Golfklúbbur Mosfellsbæjar er skemmtilegur og fjölskylduvænn golfklúbbur og gerum við okkur grein fyrir því hversu góð okkar frábæra íþrótt er fyrir alla fjölskylduna. Í fyrra fórum við af stað með fjölskyldugjaldið og tókst það virkilega vel. Við það varð mikil fjölgun hjá okkur og þá sérstaklega í krökkum og unglingum og það sem er svo skemmtilegt og ánægjulegt er að við höfum orðið var við mikla fjölgun á skipulöguðum æfingum hjá krökkum 14 ára og yngri.
Nú viljum við gera enn betur og bjóðum upp á sérstakt nýliðagjald fyrir maka núverandi GM félaga. Þau skilyrði sem þarf að uppfylla til þess að geta skráð sig í GM á þessu nýliðagjaldi eru eftirfarandi:
- - Þinn maki þarf að vera fullgreiðandi meðlimur í GM
- - Þetta er þinn fyrsti golfklúbbur, þ.e. þú hefur ekki verið skráð/ur í golfklúbb áður.
Nýliðagjaldið er 50% af fullu verði og er því 61.450 krónur.
Er það von okkar með því að bjóða upp á þetta nýliðagjald að við sjáum fleiri og fleiri fjölskyldur eiga saman frábærar stundir á okkar golfvöllum. Það er svo að sjálfsögðu þannig að þeir makar sem ákveða að nýta sér þetta gjald geta nýtt sér fjölskyldugjaldið okkar. (Frítt í GM fyrir sín börn undir 18 ára aldri).
Hægt er að sækja um aðild með því að smella hér. Vinsamlegast takið fram í athugasemdum hver ykkar maki er ásamt kennitölu.