20.09.2021
Titleist Unglingaeinvígið fór fram á Hlíðavelli síðastliðinn föstudag í 17. sinn en mótið er haldið á vegum Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Titleist Unglingaeinvígið er boðsmót þar sem leikmenn vinna sér inn þátttökurétt með góðum árangri á Unglingamótaröð GSÍ auk þess sem klúbbmeisturum GM er boðin þátttaka.
Þrír keppendur komast áfram úr hverjum flokki í lokaeinvígið eftir spennandi forkeppni.
Eftirfarandi kylfingar hófu keppni í úrslitum:
- Björn Viktor Viktorsson
- Aron Ingi Hákonarson
- Böðvar Bragi Pálsson
- Bjarni Þór Lúðvíksson
- Skúli Gunnar Ágústsson
- Hjalti Kristján Hjaltason
- Markús Marelsson
- Arnar Daði Svavarsson
- Perla Sól Sigurbrandsdóttir
- Sara Kristinsdóttir
Úrslitin voru leikin með "shootout" fyrirkomulagi þar sem 10 leikmenn hófu leik og datt einn leikmaður út á hverri holu þar til að einn kylfingur stóð eftir. Keppni var afar jöfn og spennandi og úrslit urðu eftirfarandi:
1. sæti - Hjalti Kristján Hjaltason
2. sæti - Aron Ingi Hákonarson
3. sæti - Markús Marelsson
4. sæti - Sara Kristinsdóttir
5. sæti - Arnar Daði Svavarsson
6. sæti - Skúli Gunnar Ágústsson
7. sæti - Bjarni Þór Lúðvíksson
8. sæti - Perla Sól Sigurbrandsdóttir
9. sæti - Björn Viktor Viktorsson
10. sæti - Böðvar Bragi Pálsson
Við hjá GM þökkum Titleist kærlega fyrir stuðninginn og óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn.