Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

VITAgolf mótaröðin - Úrslit

30.09.2022
VITAgolf mótaröðin - Úrslit

Nú liggja fyrir úrslit VITAgolf mótaraðarinn og og það voru þau Agnes Ingadóttir og Geir Jón Geirsson sem stóðu uppi sem sigurvegarar í ár og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Þau hafa því unnið sér inn sæti í GM ferðinni sem verður farin haustið 2023. Við stefnum á að fara þá til Valle del Este :)

Smellið hér til þess að sjá lokastöðuna í báðum flokkum.


Við hefðum gjarnan vilja sjá betri þátttöku í þessari mótaröð hjá okkur! Það væri því gaman að heyra frá ykkur kylfingar góðir ef þið eruð með góðar hugmyndir/ábendingar um það hvernig við getum fengið fleiri til þess að taka þátt. Við höfum velt ýmsum hugmyndum upp, t.d að hægt sé að leika hana tvo daga í hverri viku. Fækka hringjum sem telja í lokin og ýmislegt annað. En allar hugmyndir eru vel þegnar :) Endilega sendið okkur línu á golfmos@golfmos.is.