Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Vitagolf mótaröðin og GM ferð næsta vor til Valle del Este

09.06.2020
Vitagolf mótaröðin og GM ferð næsta vor til Valle del Este

Golfklúbbur Mosfellsbæjar kynnir til leiks nýja og glæsilega mótaröð sem leikin verður í sumar á Hlíðavelli, VITAgolf mótaröðin.

Allir félagar í GM hafa þátttökurétt og er fyrirkomulagið þannig að hægt er að spila í mótaröðinni alla miðvikudaga í sumar til loka septembers, ( að þremur miðvikudögum undanskildum, 17, júní, 1. júli og 5. ágúst). Kylfingar tilkynna sig til leiks í golfbúðinni hjá okkur og greiða þáttökugjald sem er aðeins 1.000 krónur per hring. Það eru svo fjórir bestu hringir sumarsins sem telja hjá viðkomandi kylfing. Það þarf því að spila að lágmarki 4. miðvikudaga til þess að vera gjaldgeng/ur í mótið.

Keppt er í tveimur flokkum í punktakeppni, flokki karla og flokki kvenna og er hámarksforgjöf gefin 36 í báðum flokkum.

Verðlaunin í VITAgolf mótaröðinni eru stórglæsilegt, þeir kylfingar sem spila best í hvorum flokki fyrir sig fá sæti í vorferð GM sem farin verður næsta vor.

Nú ætlum við GM félagar að skella okkur saman í stórglæsilega golfferð til Valle del Este vorið 2021. Stefnum við á að fara í 10 daga golfferð dagana 12 -22 apríl 2021. Valle del Este er stórglæsilegt golfsvæði og hlökkum við mikið til að fara með stóran hóp GM félaga á þennan glæsilega stað. Ferðin sjálf verður nánar auglýst seinna í sumar en við höfum tekið frá 60 pláss fyrir okkar félaga.

Þannig að endilega takið þessar dagsetningar frá :)

Þeir kylfingar sem hafa áhuga á því að fara með okkur í þessa ferð geta forskráð sig með því að senda tölvupóst á agust@golfmos.is.

Með því að smella hér, má nálgast nánari upplýsingar um Valle del Este. Smellið hér til að sjá hótelið!