Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

66° LISTINN - STIGALISTI FÉLAGSMANNA

27.05.2016
66° LISTINN - STIGALISTI FÉLAGSMANNA

Uppfærður stigalisti félagsmanna eða 66° listinn er kominn inn á golfmos.is

Stigagjöf verður með sama sniði og hefur verið undanfarin ár á Eimskipsmótaröðinni en sum mót koma til með að hafa meira vægi en önnur:

GM mótaröðin og Sólstöðumót GM - full stig Eimskipsmótaraðar (1500 stig fyrir 1. sæti)

Opin mót á vallarsvæðum GM - helmingur stiga Eimskipsmótaraðar (750 stig fyrir 1. sæti)

Meistaramót / Titleist holukeppnin - full stig Íslandsmóts Eimskipsmótaraðar (2000 stig fyrir 1. sæti)

Ef jafnt er þegar að verðlaunaafhendingu kemur skal leikmaður með stig úr fleiri mótum hljóta hærra sæti. Ef ennþá er jafnt skal sá leikmaður með flest stig úr einu móti hljóta hærra sæti.